Mismunandi kyn..??

Forsetin Íslands telur að kynin séu fleiri en tvö og að

fólk fæðist í röngum líkama. Hélt hún væri menntaðri en

svo það en að taka undir svona þvælu.

"Held­ur þyrfti að huga að rétt­ind­um allra kynja" hvaða kynja?

"Finn­ast þau ekki vera fædd í rétta lík­am­an­um" hvernig er það hægt?

Við greinilega þurfum að fara læra allt uppá nýtt því greinilegt

er þar sem við flokkumst undir spendýr, að rollur geta fundist þær

vera hrútar, hestar merar og hundar tíkur. 

Þetta verður bara að rannsaka og setja í nokkur hundruð milljónir

og enurskoða "kynjafræðsluna" í háskólanum því ekki er hægt að

skilja öll hin spendýra kynin eftir.

 


mbl.is Halla sló í gegn í Tókýó
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heitir að endurskipuleggja.

Nú þarf að endurskipuleggja og sjá til þess að einhver flokkagæðingurinn

fái að sjá um þetta. Hjá póítíkum heitir þetta endskpulagning en á

íslensku spilling og vanvirðing.

Lánleysi Íslendinga fellst í þeim svikum sem kjörnir fulltrúar

framkvæma eftir kosnaga lygarnar og er ein aðalástæðan fyrir

því að hér er að verða illa búandi.


mbl.is Blaut tuska í andlitið í afmælisgjöf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki með rétta trú.

Auðvitað átti að veita honum vist. Ekki spurning.

Fjölskylda sem var búin að taka hann að sér þannig

að ekki var hann að leggjast á velferðarjerfið eins

flestir sem hingað koma. En, ef hann hefði verið

hálfmána trúar, hefði solaris og no border liðið

tryllst og mótmælt og öskrað ásamt ísland-palestínu

mótmælendunum og nokkuð víst að hann hefði fengið leyfi.

Það er eins og kristnir eða kaþólskir séu ekki velkomnir

en það er einmitt fólkið sem aðlagast okkar samfélagi auðveldlega.

Reynslan í dag sýnir og sannar að miðausturlanda trúarbrögðin

gera það ekki og hafa engvan áhuga á því.


mbl.is Beiðni Oscars synjað: Þarf að yfirgefa landið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábærar.

Þessar stelpur eiga sko sannarlega skilið viðurkenningu

fyrir þennan frábæran árangur.

Væri óskandi að fleiri tækju þær til fyrirmyndar.

Það er allt hægt ef vilji og áhugi er fyrir hendi.

Þær sýndu það svo sannarlega.

Til haningju stelpur.


mbl.is Dúx og semídúx lærðu íslensku frá grunni með námi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lýsandi dæmi

hversu gjörsamlega vanhæf hún er þegar kemur að þessum málaflokki.

Þessi ákvörðun hennar er svo pólitíska og henni til skammar.

Allir vita að nú á að troða enn einni vanhæfri kynsytur sinni á stall.

Sé ekki betur en að allstaðar sé allt meira og minna í klessu þar sem

þær ráða för og það er bara staðreynd.

Vonandi endar þessi líftími forynju-stjórnarinnar sem fyrst.


mbl.is Sorgarferli á Suðurnesjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og milljónir í sporslur

fyrir ekki neitt.

Hvenær fær almenningur nóg af þessu brjálæði sem

embættismannaklíkan er að skammta sér fyrir ekki neitt.

Pírata fulltrúi í Kópavogi með tæpar 17 milljónir á ári

fyrir bull og þvaður.

Leggja á niður RUV hið fyrsta því það þjónar ekki

almenning lengur og hefur ekki gert í mörg ár.

Sama á við setur í nefndum og fleiru bara til að

ná í meiri aur.(stela)


mbl.is Heimir Már í stjórn RÚV
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Var einhver eftirspurn eftir

hennar áliti.

Þessi margfaldi lögbrjótur sem var send

heim ásamt sínum flokki er best gleymdur og geymdur.

Að vera eyða fréttum á þessa manneskju sem hefur valdið

þjóðinni tugmilljóna tjóni vegna frekju á ekkert erindi í blöðin.

Hún var kosinn út vegna þess að fólk var búið að fó nóg af

henni og þjóðinn nennti ekki lengur að hlusta á hana.

Hun getur bara stundað sín frekjuköst heima hjá sér.

Reynum að halda því þannig. Please.


mbl.is Svandís: Þrýstingur á auðlindir mun aukast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Venúsúela Íslands í uppsiglingu.?

Sama gerðist þar og allt fór til fjandans.

Fyrirtækin voru mergsogin þangað til þau hrundu

og ekkert var eftir. Fólk trúði lyginni sem lagt var á borð

og endaði með skelfingu. Milljónir á vergang og komu

meðal annars hingað. Nú er sama skattamótel komið upp

hjá fjármálaráðherra sem EKKI var kosin af almenning

og er þar að auki illa reiknandi.

Þetta er svo lýsandi vinstri manna siður. Verða aldrei

ánægðir fyrr en allir hafa það jafn ömurlegt.


mbl.is Landsvirkjun látin brúa gengismun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hættið að læra.

Þegar skóli án aðgreiningar var settur á, voru nemendur með

góðar einkunnir teknir til hliðar og látnir leira og lita þangað til

þeir sem voru lélegir voru komnir á sama stað og þeir góðu.

Þetta drap niður námsáhugann og nú er það svo að mikill meirihluti

nemenda er hvorki læs né skrifandi þegar grunnskóla er lokið.

Nú skal taka skrefið enn lengra og sjá til þess að enginn þurfi

menntun í framhaldsskóla og hvatningin til að læra algjörlega drepinn.

Fólk hefur allskonar hæfileika og ef þér finnst þú geta verið

læknir eða hvað sem er og ert með 2 í meðaleinkunn, þá ert þú svo heppinn

að sá sem er dúx úr framhaldsskólanum situr eftir og þú kemst inn.

Semsagt, skilaboðin, þú þarft ekkert að læra af því þú hefur

allskonar hæfileika,nema að læra.


mbl.is Segir ósanngjarnt að meta nemendur út frá einkunnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Borgum nú þegar.

Já en Gulli minn.

Við borgum nú þegar skatta fyrir að anda að okkur hreinu

lofti og þú stóðst þig vel í þeim sköttum.

Þessi fínu nöfn, kolefnisgjald, útblástursgjald innifalið

í þungaskatti, kolefnisjöfnun og aflátsbréf sem skipta

milljörðum eytt út í loftið og algjörlega tilgangslaust

fyrir okkar litla Ísland en íþyngjandi fyrir litla Jón

og litlu Gunnu. Þú vildir meira að segja bæta í.

Allt punt og púður út í loftið sem skilar engvu

en kostar milljarða á ári.

 


mbl.is Segir skattahækkun svik við kjósendur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Um bloggið

Sigurður Kristján Hjaltested

Höfundur

Sigurður Kristján Hjaltested
Sigurður Kristján Hjaltested

Færsluflokkar

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.6.): 97
  • Sl. sólarhring: 98
  • Sl. viku: 266
  • Frá upphafi: 60639

Annað

  • Innlit í dag: 76
  • Innlit sl. viku: 220
  • Gestir í dag: 75
  • IP-tölur í dag: 74

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband
OSZAR »